"

Eyrarbakki

Eyrarbakki er vinalegt þorp við Suðurströndina sem státar af mikilli sögu, vel varðveittum gömlum húsum og fallegri náttúru. Tvö söfn eru á Eyrarbakka, Byggðasafn Árnesinga sem er staðsett í Húsinu, sögufrægum bústað kaupmanna, og Sjóminjasafnið sem er örskammt frá. Í Húsinu ríkir hlýlegur og heimilislegur andi og sagan er við hvert fótmál. Söfnin standa í miðju þorpi rétt við kirkjuna. Í Eyrarbakkakirkju er að finna altaristöflu málaða af Louise drottningu Kristjáns IX. Á sömu torfu er veitingastaðurinn Rauða Húsið sem tekur vel á móti svöngum ferðalöngum hvort sem er í kaffi eða mat. Allir verða að taka sér göngutúr um þorpið. Þá má virða fyrir sér gömlu húsin, heimsækja handverkskonuna Regínu eða koma við í gamla frystihúsinu í Gónhól þar sem eru markaðir og gallerí. Austarlega á Bakkanum er Vesturbúðin, alhliða verslun og bensínstöð þar sem helstu nauðsynjavörurnar fást og hægt að horfa á boltann í beinni.


Þjónusta í boði

  • Leikvöllur
  • Heitt vatn
  • Sturta
  • Rafmagn
  • Salerni
  • Kalt vatn
  • Hundar leyfðir

Lýsing á aðstöðu

Tjaldsvæðið er staðsett vestast í þorpinu í rólegu og þægilegu umhverfi, góðar gönguleiðir eru frá tjaldsvæðinu hvort sem um er að ræða að skoða rómaðan Eyrarbakkan eða skemmtileg fjöruganga.

Tjaldsvæðið er einfalt með köldu og heitu vatni. Rafmagn er á svæðinu. Leiksvæði er mjög fínt.

Nýtt þjónustuhús er komið í notkun með sturtum.

Opnunartími

Opið til 1. október


Verð

Verð 2023

Verð pr tjald / hýsi: 2.500 kr
Verð fyrir rafmagn: 1.000 kr pr nótt