"

Flúðir

Árið 2009 tók Tjaldmiðstöðin á Flúðum í notkun nýtt og glæsilegt tjaldsvæði við bakka Litlu Laxár. Flúðir í Hrunamannahreppi hefur í gegnum tíðina verið vinsæll áfangastaður fyrir innlenda og erlenda ferðamenn enda eru Flúðir þekkt fyrir mikla veðursæld og má þar einnig finna ýmislegt sér til afþreyingar. Flúðir eru ekki nema í rúmlega 100 kílómetra fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.


Þjónusta í boði

  • Leikvöllur
  • Heitt vatn
  • Aðgangur að neti
  • Hestaleiga
  • Þvottavél
  • Sturta
  • Hundar leyfðir
  • Golfvöllur
  • Rafmagn
  • Salerni
  • Kalt vatn
  • Heitur pottur
  • Veiðileyfi
  • Sundlaug
  • Losun skolptanka
  • Veitingahús
  • Gönguleiðir

Lýsing á aðstöðu

Flúðir í Hrunamannahreppi hefur í gegnum tíðina verið vinsæll áfangastaður fyrir innlenda og erlenda ferðamenn og eru staðurinn þekktur fyrir mikla veðursæld. Sveitin hefur oft verið nefnd „Matarkista Íslands“ en þar fer fram mikil yl- og útiræktun á grænmeti

Á Tjaldsvæðinu eru nokkrar þjónustubyggingar með salernisaðstöðu og sturtum. Þvottahús með þvottavél og þurrkara eru í boði við Tjaldmiðstöð. Í Tjaldmiðstöðinni (rautt hús upp á hæðinni) er seldur ís, gos, grillkol og undirstöðu vörum tengdu því ásamt því að hægt er að versla kúta og áfyllingar frá AGA. Í Tjaldmiðstöðinni er hægt að nálgast alla helstu kynningarbæklinga er varða ferðaþjónustu í uppsveitum Suðurlands. Þráðlaust internet er á svæðinu, stór útigrill, leiksvæði ofl.
Vatn og rafmagn er á stæðsta hluta svæðisins.

Tjaldsvæðið er í göngufæri frá kjarna bæjarins. Á Flúðum er matvöruverslun, veitingastaðir, bar, sundlaug og fleira s.s. körfubolta- og sparkvöllur.
Svæðið henntar einkar vel fjölskyldufólki þar sem leikur í Litlu-Laxá er vinsælt og hægt að finna skemmri eða lengri gönguleiðir sem hennta jaft reyndum sem óreyndum göngugörpum. Má þá einnig nefna að yfir sumartíman eru skipulagðar gönguferðir með leiðsögumanni í Hrunamannahreppi þar sem finna má leyndar náttúruperlur.

Ýmsar aðrar skemmtilegar afþreyingar eru í boði nágrenis Flúða. Má þar meðal annars nefna; Hestaleigur, Gólfvellir, Flúðasiglingar og Riverjet í Hvítá, Dýragarðurinn Slakki í Laugarási, tónleikar í Skálholti, Þjórsárstofa í Árnesi og ekki má gleyma vinsælasta áningarstað ferðafólks, Gullfoss og Geysi.

Umgengisreglur:

Greitt er fyrir tjaldstæði í Tjaldmiðstöð við komu.
Rafmagn greiðist í Tjaldmiðstöð fyrir notkun.
Umferð ökutækja er ekki leyfð frá kl. 23:00 til kl. 9:00.
Á miðnætti skal vera komin ró á svæðið.
Þar sem hvíld er öllum ferðamönnum nauðsynleg
þá vonum við að þú munir sofa vel.
Vinnið ekki spjöll á náttúrunni.
Engin ábyrgð er tekin á eignum tjaldgesta.
Leiksvæði er á eigin ábyrgð og börn á ábyrgð ábyrgðarmanna sinna.
Lausaganga hunda er með öllu óheimil.
Ölvun á almannafæri er með öllu óheimil á tjaldsvæðinu og við og í Tjaldmiðstöð.
Öllu rusli skal komið fyrir í ruslagámi á plani við útkeyrslu!
Brot á umgengnisreglum getur varðað brottrekstri!

A.T.H. 25 ÁRA ALDURSTAKMARK ER Á TJALDSVÆÐIÐ! Nema í fylgd forráðamanna.

Starfsfólk Tjaldmiðstöðvarinnar á Flúðum leggur sig fram um að mæta kröfum ykkar og óskum eftir bestu getu. Ef þið hafið einhverja spurningar eða óskir, endilega leitið til tjaldvarðar.


Verð

Almennt verð (2023):

VIKUTILBOÐ: Kr. 6.000 pr fullorðinn og kr. 4.000 pr barn í 7 daga.

Fullorðnir:
pr dag: 1.750 kr
3 dagar og lengur: 1.500 kr

Börn (0 – 10 ára): Frítt

Börn (11 – 16 ára)
Pr dag: 1.250 kr
3 dagar og lengur: 1.000 kr

Ellilífeyrisþegar og öryrkjar:
pr dag: 1.250 kr
3 dagar og lengur: 1.000 kr

A.T.H. 25 ÁRA ALDURSTAKMARK ER Á TJALDSVÆÐIÐ! Nema í fylgd forráðamanna.

Um verslunarmannahelgina eru ekki seldir stakir dagar. Með því að borga 4 nætur getur fólk verið í 7 nætur og fær því 3 nætur frítt.

Rafmagn: 1.000 kr á dag
Þráðlaust net: Frítt
Þvottavél: 600 kr
Þurrkari: 600 kr