Tjaldsvæðið er staðsett í Herjólfsdal. Svæðið er þannig girt af með fjalli í laginu eins og skeifa sem veitir svæðinu gott skjól.
Athugið að hundahald er bannað á tjaldsvæðinu
Á svæðinu er þjónustuskáli með eldunaraðstöðu, salernisaðstöðu, Þvottavél og þurrkara. Salernisaðstaða og sturtur sem eru innifaldar í verðinu. Þá eru einnig leiksvæði fyrir börn. Rafmagn fyrir húsbíla og tjaldvagna.
Vestmannaeyjar eru um 15-18 eyjar þar sem Heimaey er eina byggða eyjan. Flogið er daglega á milli lands og eyja og einnig siglir ferjan Herjólfur frá Landeyjarhöfn til eyja og tekur það aðeins 35 mínútur. Um 4.000 íbúar búa í Vestmannaeyjum og er því öll þjónusta þar til staðar. Mikið líf er í vestmannaeyjum yfir sumartímann með frægu Shell fótboltamóti og er hápunktinum náð yfir þjóðhátíð sem er haldin um verslunarmannahelgi. 23. janúar 1973 var örlagaríkur dagur í sögu Vestmannaeyja þegar eldgos hófst í Heimaey.
Næstum allir íbúar voru fluttir í burtu og snéru ekki aftur fyrr en gosinu lauk í júní sama ár. Mikið eignatjón varð en allir íbúar sluppu heilir. Fyrir ferðamenn sem koma til Vestmannaeyja þá er nauðsynlegt að fara á gosslóðir en enn má finna yl í jörðinni þegar grafið er stutt niður.
Opnunartími
1.maí-30.sept
Verð fyrir fullorðna: 2.200 kr
Frítt fyrir 12 ára og yngri
Rafmagn: 1.300 kr