Tjaldsvæðið við Þórsvöll opnaði sumarið 2007. Þaðan er stutt í alla helstu þjónustu en sundlaugin er í 250 metra fjarlægð, 350 metrar eru í matvöruverslun og 150 metrar í golfvöll.
Á tjaldsvæðinu er þjónustuhús með lítilli eldhúsaðstöðu s.s. brauðrist, samlokugrilli, brauðrist og kaffivél. Bjóðum einnig upp á þvotta- og þurrkaðstöðu, 4 salerni og 2 sturtur sem eru innifaldar í verði.
Á svæðinu er rafmagn og vatn fyrir húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna. Leiksvæði fyrir börn er til staðar. Stutt er í þjónustu frá tjaldsvæðinu.
250 metrar í sundlaug og íþróttamiðstöðina
350 metrar í matvöruverslun
150 metrar í golfvöll
Vestmannaeyjar eru um 15-18 eyjar þar sem Heimaey er eina byggða eyjan. Flogið er daglega á milli lands og eyja og einnig siglir ferjan Herjólfur frá Landeyjarhöfn til eyja og tekur siglingin um 35 mínútur. Um 4.000 íbúar búa í Vestmannaeyjum og er því öll þjónusta þar til staðar. Mikið líf er í vestmannaeyjum yfir sumartímann með frægu Shell fótboltamóti og er hápunktinum náð yfir þjóðhátíð sem er haldin um verslunarmannahelgi. 23. janúar 1973 var örlagaríkur dagur í sögu Vestmannaeyja þegar eldgos hófst í Heimaey. Næstum allir íbúar voru fluttir í burtu og snéru ekki aftur fyrr en gosinu lauk í júní sama ár. Mikið eignatjón varð en allir íbúar sluppu heilir. Fyrir ferðamenn sem koma til Vestmannaeyja þá er nauðsynlegt að fara á gosslóðir en enn má finna yl í jörðinni þegar grafið er stutt niður.
Opnunartími
6. júní - 22. ágúst
Verð 2023
Verð fyrir fullorðna: 2.200 kr (3.000 kr fyrir hverja persónu yfir hvern dag yfir Þjóðhátíð 03.08-05.08.)
12 ára og yngri: Frítt
Rafmagn: 1.300 kr
Þjónustuhúsið hefur að geyma
4 salerni
2 sturtur
Þvottavél
Þurrkara
Snúrur
Auk þess eru ferðasalerni á neðra svæði.
Tökum ekki á móti pöntunum bara að mæta á svæðið.