Til að komast að Blágiljum þarf að keyra Lakaveg (F206) þar sem eru nokkrar óbrúaðar ár og er því aðeins fært þangað á góðum jeppum.
Við tjaldsvæðið er fjallaskáli með svefnpokaplássi fyrir 16 manns og eldhúsaðstöðu, salerni og sturtu.
Kalt vatn er á tjaldsvæðinu og nota tjaldgestir vatnsalerni í skálanum. Tjaldgestir geta einnig notað sturtuaðstöðuna í skálanum en fyrir það þarf að greiða sérstaklega.
Nánari upplýsingar og bókanir fyrir Blágiljaskála eru á Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri, sími 4874620 og/eða klaustur@vjp.is.
Tjaldsvæðið er nálægt Lakasvæðinu sem er hluti Vatnajökulsþjóðgarðs og þar eru fallegar gönguleiðir. Á fræðslutímabili Vatnajökulsþjóðgarðs eru fræðslugöngur frá Laka og við hvetjum ykkur til að spyrja landverði um þær. Tjaldsvæðið er opið yfir sumartímann.
Kalt vatn
Gönguleiðir
Hundar leyfðir
Sturta gegn gjaldi
Opnunartími
Opið yfir sumarið.
Verðskrá 2023
Tjaldsvæði
3.000 kr - Lítið tjald (1-2. pers.)
2.400 kr - Eldri borgarar og öryrkjar
4.000 kr - Stórt tjald (3-6 pers.)
3.200 kr - Eldri borgarar og öryrkjar
5.000 kr - Húsbíll (1-6 pers.)
4.000 kr - Eldri borgarar og öryrkjar
Annað
500 kr - Sturta
500 kr - Aðstöðugjald
• Gjaldið miðast við gistingu yfir eina nótt, verð á gistingu í skála miðast við hvern ferðamann.
• Eldri borgurum (67 ára og eldri) og öryrkjum er veittur 20% afsláttur af gistigjöldum.
Verð í skála
4.500 kr - Fullorðnir
3.600 kr - Eldri borgarar og öryrkjar
2.250 kr - Ungmenni (12- 17 ára)
Frítt Börn (0-12 ára)