"

Hveragerði - Reykjamörk

Tjaldsvæðið er í hjarta bæjarins í gróðursælu umhverfi þaðan sem stutt er í alla þjónustu svo sem sundlaug, leikvelli, matvöruverslun, gjafavöruverslanir, bókasafn, listasafn, reiðhjólaleigu, hestaleigu og Golfvöll. Stutt er í góðar gönguleiðir eins og Heilsuhringinn sem liggur í gegnum sjálft tjaldsvæðið og Reykjadalurinn margrómaði.


Þjónusta í boði

  • Opið allt árið
  • Salerni
  • Þvottavél
  • Sturta
  • Hundar leyfðir
  • Eldunaraðstaða
  • Gönguleiðir
  • Leikvöllur
  • Hestaleiga
  • Sundlaug
  • Losun skolptanka
  • Veitingahús
  • Golfvöllur
  • Rafmagn

Lýsing á aðstöðu

Á tjaldsvæðinu er góð aðstaða fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Hér er eldhúsaðstaða með heitu og köldu vatni, góð salernisaðstaða með sturtum og hægt er að komast í þvottavél og þurrkara. Stórt tunnugrill er á staðnum.
Rafmagnstengill er við hvert stæði og hleðslustöð fyrir rafbíla við þjónustumiðstöðina.


Verð

Verð 2023

Verð fyrir fullorðna: 2.000 kr.
0 – 15 ára: Frítt

Rafmagn: 1.000 kr (greiðist á staðnum)
Þvottavél: 800 kr (greiðist á staðnum)
Þurrkari: 800 kr (greiðist á staðnum)